Slysatrygging um allan heim - allan sólarhringinn
Slysatrygging
Slysatryggingin okkar brúar bilið sem lögbundna tryggingin dekkar ekki - til dæmis ef slys ber að höndum við íþróttaiðkun, tómstundariðju, á ferðalögum eða heima við. Þar að auki tekur tryggingin þátt í kostnaði við fegrunaraðgerðir, gervitennur, björgunarkostnað og sálfræðiþjónustu af völdum slyss.
- Slysatrygging allan sólarhringinn og um allan heim
- Langtímavernd jafnvel ef um varanlega skerðingu er að ræða eftir slys
- Allt að 750.000 evrur í eingreiðslu og með möguleika á ævilöngum lífeyri
24/7 trygging
Allan sólarhringinn
Slysatrygging hvar sem er í heiminum
Langtímavernd
Varanleg vernd
Við varanlegri líkamlegri skerðingu
750.000 €
Há eingreiðsla
Eingreiðsla allt að 750.000 €
12.000 €/ á ári
Ævilangur lífeyrir
Val um lífeyri allt að 12.000 € á ári
Þrjú lykilatriði slysatryggingar okkar
Eingreiðsla
Allt að 750.000 € greidd út við 100% örorku til að tryggja fjárhagslegt öryggi þitt og fjölskyldu þinnar í erfiðum aðstæðum.
- Allt að 750.000 € við 100% örorku
- Hlutfallsleg greiðsla við minni skerðingu
- Snögg útgreiðsla
- Engin skattskylda
Ævilangur slysalífeyrir
Val um tryggan, fastan mánaðarlegan slysalífeyri sem veitir stöðugar tekjur og fjárhagslegt öryggi eftir alvarlegt slys.
- Greiðslur ævilangt, óháðar öðrum tryggingum
- Hægt að bæta við samninginn hvenær sem er
- Aðlögunarkostnaður á heimili
Fjölskylduúrræði
Maki og börn tryggð frítt fyrstu 12 mánuði – hægt að framlengja með barnaiðgjöldum. Öll fjölskyldan er vernduð.
- Maki tryggður frítt í 12 mánuði
- Börn tryggð frítt í 12 mánuði
- Möguleiki á framlengingu
- Sama vernd fyrir alla fjölskylduna
Spurt & svarað
Hvar og hvenær er ég með lögbundna slysatryggingu?
Lögbundin slysatrygging gildir eingöngu fyrir slys á vinnustöðum, í háskóla eða öðrum menntastofnunum. Bein leið þangað og heim er einnig innifalin. Þú ert ekki með lögbundna slysatryggingu við neinar aðrar aðstæður - þú átt því engarn rétt á bótum. Flest slys gerast þó í frítíma. Hvort sem það er heima við, við íþróttaiðkun eða við daglegar athafnir: Svo lengi sem sjúkratryggingar bjóða ekki upp á frekari tryggingu mun einungis slysatrygging standa straum af kostnaði.
Að hve mikklu leyti og hversu lengi fæ ég umsaminn slysalífeyri?
Auk eingreiðslu bóta þegar slys ber að höndum er gerður greinarmunur á tveimur bótaþrepum fyrir ævilangan slysalífeyri. Almennt gildir, að þú átt rétt á slysalífeyri að upphæð 500 evrum ævilangt frá 50% skerðingarstigi (örorkustigi)eða meira. Sé skerðing metin yfir 90 prósent, tvöfaldast mánaðarlegar slysalífeyrisbætur í 1.000 evrur.
Hefur lögbundin slysatrygging áhrif á bætur úr slysatryggingunni?
Auk eingreiðslu bóta þegar slys ber að höndum er gerður greinarmunur á tveimur bótaþrepum fyrir ævilangan slysalífeyri. Almennt gildir, að þú átt rétt á slysalífeyri að upphæð 500 evrum ævilangt frá 50% skerðingarstigi (örorkustigi)eða meira. Sé skerðing metin yfir 90 prósent, tvöfaldast mánaðarlegar slysalífeyrisbætur í 1.000 evrur.
Hverjir eru tryggðir með slysatryggingunni?
Í grundvallaratriðum er alltaf sá tryggður sem tilgreindur er í samningnum. Auk þess aðlagast slysatryggingin sjálfkrafa að breyttum aðstæðum. Ef þú gengur í hjónaband er maki þinn tryggður í 12 mánuði eftir hjónavígslu án viðbótargjalds. Á sama hátt er nýfætt barn tryggt í 12 mánuði frá fæðingu sem og ættleitt barn að 14 ára aldri frá ættleiðingu (sjá skilyrði fjölskyldulífeyristryggingar).
Er slysatrygging fyrir börn þess virði?
Slysatrygging er nánast ómissandi fyrir börn og unglinga. Börn, ungmenni og fólk sem stundar íþróttir er ávallt varið fyrir afleiðingum alvarlegra slysa - til dæmis við íþróttaiðkun eða fall af leiktækjum - sem getur haft víðtækar heilsufarslegar afleiðingar. Þetta er tilfinningalega og fjárhagslega streituvaldandi fyrir fjölskyldumeðlimi. Ef sjúkratryggingar bjóða ekki lengur upp á vernd munu einungis slysatryggingar standa straum af kostnaði. Slysatrygging barna er „líftrygging“ fyrir börn þar sem hún tryggir í upphafi fjárhagslegan stuðning og eftir alvarleika ævilangan lífeyri.
Hvað þýðir framvinda í slysatryggingum?
Framvinda er aukning á frammistöðu slysatryggingarinnar. Ef til varanlegrar skerðingar kemur af völdum slyss og þú hefur valið framvindu í samningnum þínum, hækkar bótagreiðslan með hverju prósentustigi frá 25 prósenta skerðingu. Framvindan er frammistöðuúrbót slysatryggingarinnar, sem þýðir að því alvarlegri sem afleiðingar slyssins eru, þeim mun hærri er margföldunin á umsamda vátryggingarfjárhæð.
Hversu háar eru örorkubætur?
Þegar um varanlega heilsuskerðingu er að ræða eftir slys ráða tveir þættir fjárhæð tryggingabóta: umsamin vátryggingarfjárhæð og ákveðið skerðingarstig (örorkustig).Við mælum með að samið sé um nægilega háa vátryggingarfjárhæð. Nýttu þér gjarnan reynslu okkar og hafðu samband við ráðgjafa okkar.
Hvað þýðir örorkustig í slysatryggingum?
Með örorkustigi er átt við að hve miklu leyti einstaklingur er varanlega andlega eða líkamlega skertur eftir alvarlegt slys. Samsvarandi örorkustig er hægt að ákvarða með svokölluðum útlimareikni. Til dæmis ef einhver missir handlegg vegna slyss samsvarar það 80 prósenta örorku samkvæmt mælikvarða slysatryggingarinnar.
Need technical skills to use RiseVerse?
No, it’s designed to be user-friendly for all, with an easy interface and support team to help with any issues.
How often are updates released?
We release updates weekly, automatically providing subscribers with the latest features and improvements.
Can I change my subscription?
Yes, you can change your plan anytime from your dashboard or by contacting support.
Hafðu samband
Samskiptaupplýsingar
Fljótleg svörun